155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[18:58]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Hæstv. ráðherra þarf ekki að hafa áhyggjur af afkomu stórútgerðarinnar sem malar gull og teygir anga sína út um samfélagið með fjárfestingum í ótengdum greinum og veldur reyndar þenslu. Sannarlega væri ástæða til að líta frekar til þess að þjóðin og ríkissjóður fengi stærri hlut af auðlindarentunni. Það er réttlátt og sanngjarnt. Þessir tveir milljarðar sem hér er verið að tala um eru grín, frú forseti. Þeir eru meira svona til þess að segja: Jú, við hækkuðum veiðigjöldin, en þetta er ekki neitt. Þetta er ekki neitt neitt. Þetta er bara sjálfsagt mál og ekkert til að ræða og ég er alveg viss um að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn munu alveg kyngja þessu eins og ekkert sé.

En ég vil spyrja hv. þingmann út í strandveiðarnar. Það er boðað frumvarp um strandveiðar í janúar. Munu þar koma fram áherslur Vinstri grænna um að stækka þann pott?