fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég hef engar sérstakar áhyggjur af stórútgerðinni, svo það sé nú sagt. Ég er alveg sammála hv. þingmanni, hún hefur það alveg þokkalegt. Ég vil kannski halda því til haga samt sem áður að á þessu ári hækkaði veiðigjaldið á kíló á nokkrum helstu botnfiskstegundum þannig að það hefur ekki verið hærra síðan 2018.
Varðandi strandveiðarnar þá er verið að smíða frumvarp í ráðuneytinu. Ráðgjöfin er alltaf til staðar. Já, ég hyggst reyna að eiga við það að úthluta meiru til strandveiða heldur en verið hefur og ég ætla líka að halda því til haga að það hefur aldrei verið eins mikið eins og var í sumar. En já, ég hyggst reyna eitthvað aðeins að eiga við það þannig að innan þessa 5,3%-kerfis þá renni eitthvað meira til strandveiðanna.