155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:01]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna hér áðan sem var um margt áhugaverð. Á þingmálaskrá er frumvarp til laga um breytingu á lögum stjórn fiskveiða, strandveiðar, sem er gert ráð fyrir að verði lagt fram í janúar. Ég vil minna hæstv. ráðherra á að sem þingmaður var hún flutningsmaður tillögu til þingsályktunar um félagslega eflingu fiskveiðistjórnarkerfisins þar sem eftirfarandi kemur fram:

„Alþingi ályktar að fela matvælaráðherra að efla félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins með aukinni hlutdeild í heildarafla …“

Eftirfarandi kemur fram í greinargerðinni með þessari tillögu, sem hæstv. ráðherra var meðflutningsmaður á, og vísað þar til stefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs:

„[U]m auðlindir hafs og stranda er skýrt kveðið á um eflingu félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins“ og þá stefnu að „stækka í áföngum félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins með það fyrir augum að hlutdeild þess verði 8,3% af heildarafla í stað 5,3%“ í núverandi lögum.

Spurningin er þessi: Ætlar hæstv. matvælaráðherra að sjá til þess í fyrsta lagi að strandveiðimönnum verði tryggðir 48 veiðidagar í strandveiðikerfinu með lögum og a.m.k. að þeim verði tryggð 8,3% af heildaraflanum? Það er búið að lofa strandveiðimönnum þessu árum saman. Í hittiðfyrra voru veiðar stöðvaðar 21. júlí, í fyrra 11. júlí og núna í ár um miðjan júlí eftir smáframlengingu frá hendi hæstv. ráðherra. Hvað ætlar ráðherrann að gera í þessu frumvarpi?