fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég stóð sannarlega sem þingmaður að þessari þingsályktun um aukna hlutdeild strandveiðanna og ég ætla bara alveg að halda því fram að það sé mjög göfugt markmið og ég myndi vilja sjá okkur fara í þá átt. Ég ætla ekki að lofa því að ég geri það á einu bretti, ég held að það myndi ekki nást samstaða um það í ríkisstjórn, svo að því sé haldið til haga. Aðalmarkmiðið er, og það var það sem ég reyndi að gera í sumar, að bæta við pottinn til að strandveiðisjómenn hafi lengri tíma til að veiða, ekki síst á því svæði þar sem stærri fiskurinn gengur seint.
Ég er að vinna núna að nýju strandveiðifrumvarpi, sem ég treysti að hv. þingmaður hjálpi mér að koma í gegn ef hann situr áfram í atvinnuveganefnd, þar sem við jöfnum þetta aftur þannig að allir geti unað svona sæmilega sáttir við sitt. Ég er búin að funda með strandveiðisjómönnum á Patreksfirði og eins fyrir austan og í sjálfu sér er markmið þeirra eins, en þeir hafa, eins og í pólitíkinni, mismunandi leiðir til að nálgast það. En í öllu falli þá hef ég það markmið að reyna að jafna hlut svæðanna án þess endilega að ganga aftur til baka í svæðafyrirkomulagið nákvæmlega eins og það var. En það eru ýmsar leiðir til úrvinnslu núna þegar verið er að smíða þetta frumvarp af því að ég kom með margs konar upplýsingar inn í ráðuneytið eftir þessi samtöl sem mér finnst vert að skoða nánar og það er verið að gera það. Þannig er staðan akkúrat núna. En ég myndi sannarlega vilja stefna að þessu markmiði en ætla ekki að gera það í einum rykk. Það er alveg ljóst.