155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:05]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Eins og ég skildi svar hæstv. ráðherra þá ætlar hann ekki að hafa það í frumvarpinu að heildarafli strandveiðimanna í frjálsa strandveiðikerfinu verði 8,3%. Hæstv. ráðherra lítur svo á að gera það í fleiri áföngum. Það er þannig sem ég skildi þetta svar, að þess sé ekki að vænta að það verði aukin prósenta hvað þetta varðar þannig að þeir verða kannski áfram fastir í 5,3%. Það væri gott ef hæstv. ráðherra leiðrétti mig ef ég er að misskilja málið, en við erum a.m.k. komin með svar. Það er ljóst að stefna Vinstri grænna mun ekki ná fram ganga hvað varðar heildarafla í strandveiðikerfinu, sem er sorglegt.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Ef það kæmi í lögum, sem ég vona að hæstv. ráðherra beiti sér fyrir, að strandveiðimenn fái 48 veiðidaga á árinu, 12 daga í mánuði í maí, júní, júlí, ágúst, með þeim takmörkunum sem eru í núverandi kerfi varðandi klukkutíma og heildarmagn, telur hún að það myndi ógna fiskstofnum við landið ef strandveiðimenn fengju að veiða 48 daga á sumri innan núverandi kerfis án þess að horfa til heildaraflans? Mun það ógna fiskstofnum við landið? Hver er skoðun hæstv. ráðherra á því? Ógna strandveiðar fiskstofnum við landið?