fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég hef ekki hagfræðilega greiningu mér við hlið sem ég get sagt að ég geti lagt fram. Engu að síður er þetta ekki úr einhverju tómarúmi gripið frekar en þegar veiðigjöldin hafa verið lögð á eða þeim breytt, þá hefur það ekki verið einhver geðþóttaákvörðun á hverjum tíma. Ég veit af þessari skýrslu sem hv. þingmaður vísar til en er ekki búin að lesa hana. Það var auðvitað greinin sjálf sem lét gera hana fyrir sig og það eru til alls konar greiningar innan ráðuneytisins sem ríma kannski ekki endilega við nákvæmlega það sem þar kemur fram. Engu að síður ætla ég að leyfa mér að halda því fram að þetta setji sjávarútveginn ekki á hliðina, þ.e. stórútgerðina, þó að samanlagður kostnaður þeirra stórútgerða sem gera út við Ísland hækki um milljarð eða tvo eða verði til þess að hún geti ekki fjárfest eða setji henni einhverjar slíkar skorður. Það getur verið að okkur greini á um það, það efast ég ekki um. Ég hef heyrt í SFS og fulltrúum þeirra í fjölmiðlum og þar eru tíndar til í rauninni allar greiðslur sem inntar eru af hendi og talað um að ríkið sé að fá fullmikið í sinn vasa. Samt sem áður eru þessar útgerðir að skila talsvert miklum hagnaði ár hvert. Þegar maður horfir til þeirra reikninga þá ætla ég að leyfa mér að halda því fram að þetta verði ekki til þess að setja útgerðina á hliðina eins og ég sagði áðan.