155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:12]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég tel vera mjög mikilvægt að samhliða frumvarpi inn í þingið í haust komi fram hagfræðileg greining á áhrifum á greinina af þessum hækkunum. Það hlýtur að vera gert samhliða þannig að þingheimur geti áttað sig á áhrifunum. Jafnvel að fá frekari greiningar sem eru að finna í ráðuneytinu um áhrif veiðigjalds á greinina, á landsframleiðslu og tekjur ríkisins. En það er ágætt að nefna hér hverjar helstu niðurstöður þessara ágætu fræðimanna sem ég vísaði til áðan eru. Þær eru að hagræn rök séu fyrir því að hækkun veiðigjalds muni minnka landsframleiðslu og þar með draga úr hagvexti og rýra efnahag landsmanna. En það er meira. Hækkun veiðigjalds muni líklega einnig minnka skatttekjur hins opinbera þegar fram í sækir að öðrum kosti. Þetta er því svolítið eins og að pissa í skóinn sinn, að halda (Forseti hringir.) að með því að hækka skattinn ætli ríkið að njóta hærri tekna. Það mun á endanum hafa minni tekjur úr að spila.