fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur. Ég ætla að leyfa mér að efast um að þær tekjur sem við öflum fyrir ríkissjóð valdi almenningi einhverju tjóni, bara yfirleitt. Ég ætla líka að leyfa mér að efast um þessar forsendur sem gefnar eru í þessari skýrslu, þegar talað er um að þetta verði til þess að tekjurnar verði rýrari til ríkisins heldur en þær hafa verið hingað til. Ef við hugsum og horfum til baka þá held ég í öllu falli að það hafi alltaf verið ágreiningur um það þegar hefur átt að breyta veiðigjöldum. Þá hefur komið svona hljóð úr þessu horni. En forsendurnar fyrir því hvernig veiðigjöldin reiknast eru í fjármálaráðuneytinu. Það kemur væntanlega frá Skattinum og skattframtölunum sem þar eru undir, en sannarlega hefur skrifstofa sjávarútvegs aðstoðað við það. En ég skal alveg taka við þessari ábendingu hv. þingmanns um greiningar og leggja þær fram með frumvarpinu.