155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:15]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Fyrir nokkrum árum síðan þegar við hæstv. ráðherra vorum saman í fjárlaganefnd spurðum við einmitt stjórnsýsluna hvað reksturinn kosti okkur í rauninni varðandi eftirlit og umsjón hafauðlindarinnar; Landhelgisgæslan, Fiskistofa, Hafrannsóknastofnun, allt þetta havarí, og hverjar tekjurnar væru á móti. Þegar talið var saman — þær flakka aðeins fram og til baka milli ára eftir því sem veiðigjöldin eru lægri o.s.frv. — var meðaltalið á ári eftir kostnað ríkisins plús 500 milljónir. 500 milljónir eftir kostnað sem ríkið heldur eftir af aðgangi að sameiginlegri auðlind. Arðgreiðslur á móti hjá útgerðinni, það er líka eftir kostnað, voru það mikið hærri að skiptingin var 95% á móti 5%, þ.e. ríkið er að fá 5% af öllu sem kemur eftir kostnað og útgerðin 95%. Þá veltir maður fyrir sér hvort að það sé sanngjörn skipting eða ekki þegar allt kemur til alls. Dæmið er svona einfalt. Það er oft talað um hversu há veiðigjöld við erum að fá, 8 milljarða, eitthvað svoleiðis, sem gert er ráð fyrir núna, en það er kostnaður á móti. Þannig að mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Er ekki kominn tími til að spyrja aðeins þessarar spurningar? Hver er sanngjörn arðsemisskipting eftir kostnað þegar allt kemur til alls? Eftir því sem ég kemst næst er t.d. skiptingin á arðsemi í olíunni í Noregi svipuð, 95% og 5%, nema ríkið er að fá 95%, svona af afspurn.