fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni upprifjunina, ef ég get orðað það svo, af því að það er alveg rétt að við óskuðum eftir þessu og ræddum þetta talsvert og kannski er bara ágætt, þar sem sú sem hér stendur er í aðstöðu til að láta taka saman akkúrat núna hver kostnaður við eftirlitið er — af því að ég hef sagt það og stend alveg við það að ég held að það sé því miður kannski of lítið eftir, eins og hv. þingmaður fer hér inn á, sem í raun verður eftir í ríkissjóði og sannarlega ekki í neinu samræmi við það sem útgerðin hefur eftir hjá sér. Eins og við höfum verið að tala um og eins og ég sagði hérna áðan varðandi afkomu þeirra þá hef ég ekki miklar áhyggjur meðan staðan er þannig.
Við erum að setja talsvert mikla fjármuni einmitt núna í eftirlit, í rannsóknir og annað slíkt til að vinna í rauninni með sjávarútveginum því að ég held að eftir því sem við eigum betri rannsóknir þá getum við eðli máls samkvæmt gefið betri ráðgjöf og betri ráðgjöf ætti að geta skilað sér í því að við séum að fá á land þær tegundir sem eru okkur hvað dýrmætastar.
Þetta er góður punktur og ég ætla að taka þetta til mín og rúlla aðeins í gegnum þennan kostnað aftur.