155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:19]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Einmitt örstutt um þetta téða eftirlit, fyrir nokkrum árum síðan þegar við samþykktum breytingar varðandi fiskeldi þá komu sérfræðingar fyrir allar nefndir þingsins og tjáðu okkur að þetta gæti verið rosalega öruggt, allt rosalega öruggt, ef það yrði statt og stöðugt eftirlit, rauntímaeftirlit. Hvað hefur gerst síðan þá? Var rauntímaeftirlit? Hversu mörg mengunarslys og umhverfisslys höfum við séð síðan þá? Eru 50 milljónir í viðbót nóg fyrir aukaeftirlit með fiskeldinu miðað við stækkanir o.s.frv.? Nægir það til að sinna þeim lögbundnu skyldum sem eru listaðar upp í lögum sem við erum að miða við? Náum við því, nær Fiskistofa að sinna eftirlitinu samkvæmt lögum? Því að þegar maður fer í heimsókn til Fiskistofu þá er það langt því frá. Munu þessar milljónir sem verið er að leggja til núna á þessu ári og næsta dekka það, (Forseti hringir.) eða erum við enn og aftur að vanfjármagna þessar eftirlitsstofnanir sem koma einmitt í veg fyrir skaðann (Forseti hringir.) sem við þurfum þá að borga á einhvern hátt óbeint?