fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég tel að þessar 50 milljónir, ofan á 126 milljónir, ekki gleyma því, sem voru í fjárlögum þessa árs, skipti rosalega miklu máli og það segir Fiskistofa mér. Ég er búin að fara um landið og heimsækja undirstofnanir mínar, sem eru MAST, Matís, Hafró og Land og skógur, nánast alls staðar, ekki alveg, og ræða við fólk um þetta. Það er verið að ráða í sex stöður hjá MAST vegna eftirlitsins, eingöngu í fiskeldi. Ég tel að það skipti mjög miklu máli, við verðum að koma í veg fyrir slíkt mengunarslys eins og hefur orðið hér á undanförnum árum. Hafró er líka að fá aukna fjármuni til að fara í þessi mál, bæði umhverfisáhrif sjókvíaeldis, rannsóknir og dreifingu laxalúsar og fiskilúsar o.s.frv., þannig að já, ég held, miðað við a.m.k. mín samtöl við þessar stofnanir, að þær telji sig geta komist ansi langt í því að sinna því sem þeim ber að sinna, ef þær fá fólk til að sinna vinnunni.