155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:21]
Horfa

Daði Már Kristófersson (V):

Forseti. Í vor voru samþykktar breytingar á búvörulögum sem fólu m.a. í sér heimild fyrir kjötafurðastöðvar til að sameinast og gerðu þær undanþegnar samkeppnislögum eins og þau gilda um aðra framleiðslu, m.a. annarra matvæla. Þingmenn Viðreisnar voru efins um að þessi breyting væri skynsamleg. Fákeppni hefur verið vandamál í íslensku samfélagi um langt skeið og þingmenn vöruðu mjög við því að þessi leið yrði farin en ríkisstjórnin ákvað að fara hana samt sem áður.

Nú er ljóst að það hefur verið meginverkefni og eitt af mikilvægustu verkefnum stjórnvalda að vinna gegn verðbólgu. Því miður sýna tölur Hagstofunnar síðan þessi breyting var gerð að verð á þeim vörum sem voru undir í þessari breytingu búvörulaga, þ.e. kjötvörum, hefur hækkað umfram önnur matvæli og umfram aðrar hækkanir vísitölu neysluverðs og raunar hækkað meira á undan á undanförnum mánuðum síðan breytingin varð á lögunum en á árinu þar á undan. Mig langar að spyrja hæstv. matvælaráðherra hvort ráðuneytið fylgist með þessum breytingum. Hugmyndin var sú að þetta myndi leiða til lækkunar á kostnaði sem ætti að skila sér til neytenda en því miður virðist þróunin hingað til hafa verið önnur. Mun ríkisstjórnin breyta afstöðu sinni ef þessi árangur skilar sér ekki?