155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:26]
Horfa

Daði Már Kristófersson (V):

Forseti. Ég þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir svarið. Nú er það ekki þannig að það sé, og ég tek undir orð ráðherrans, hægt að draga afgerandi ályktanir af breytingu á vísitölu neysluverðs á ekki lengri tíma en þegar er liðinn. Hins vegar eru fyrstu tölur ekki uppörvandi, og ég vil því spyrja alveg sérstaklega aftur: Reynist það svo, sem því miður virðist vera raunin hingað til, að þessi breyting verði ekki til þess að það skili sér árangur til neytenda, heldur þvert á móti sú reynsla sem að jafnaði annars er þegar samþjöppun á sér stað, að menn misnoti markaðsráðandi stöðu sína og hækki vöruverð, mun það leiða til að þessi breyting verði afturkölluð?