155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:28]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra framsöguna hér áðan. Eins og hæstv. ráðherra kom inn á í ræðu sinni eru fjölmörg mikilvæg verkefni sem heyra undir matvælaráðuneytið, m.a. að efla umgjörð sjávarútvegs og fiskeldis. Í því samhengi langar mig að spyrja hæstv. ráðherra tveggja spurninga. Í fyrsta lagi: Hefur ráðherra einhverjar tillögur til að auka verðmætasköpun í sjávarútvegi og stækka þannig kökuna og þar með tryggja auknar tekjur fyrir ríkið? Í öðru lagi: Virkur tekjuskattur fiskveiða er 58%. Hefur núverandi eða aukin skattlagning verið metin út frá samkeppnishæfni og skattumhverfi þeirra þjóða sem íslenskur sjávarútvegur keppir helst við?