155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:29]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Aukin verðmætasköpun felst kannski í því að við stundum áfram sjálfbæran sjávarútveg og fylgjumst með okkar vistkerfi. Að mínu mati held ég fyrst og fremst að það sé það sem við þurfum að horfa til. Varðandi samkeppni við aðrar þjóðir þá hef ég ekki áhyggjur. Ég er búin að fara til Spánar, Noregs og Svíþjóðar þar sem ég hef m.a. verið að ræða sjávarútveg. Þar er eftir okkur tekið svo um munar og við erum fremst meðal þjóða og jafningja þegar kemur að sjávarútvegi og upp til okkar er litið. Ég hef því ekki áhyggjur af því ef hv. þingmaður er að hugsa um gjöldin sem sjávarútvegurinn greiðir, að þau verði honum svo um megn að einhverjar hömlur verði á samkeppnisstöðunni. Ég segi það enn og aftur að mér finnst bókhald þessara fyrirtækja gefa til kynna að þeim gangi ágætlega. Meðan svo er þá ætla ég að leyfa mér að hafa ekkert sérstakar áhyggjur af þessu, en ég held fyrst og fremst að á meðan við stundum áfram sjálfbærar veiðar og erum að gera þetta með ágætisbrag eigum við ekki að hafa áhyggjur af því hvort við stöndumst samkeppni við aðrar þjóðir. Ég fæ það ekki séð miðað við mína upplifun þennan stutta tíma sem ég er búin að vera í ráðuneytinu og þær þjóðir sem ég hef hitt og sjávarútvegsráðherra. Ég tel svo ekki vera, því að það er mikið litið upp til okkar og hvar við stöndum, hversu framarlega við stöndum í margvíslegu hlutverki þegar kemur að sjávarútvegi.