fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Það er enginn að leggja til að hér verði viðhafðar ósjálfbærar veiðar, það segir sig sjálft, held ég að sé óhætt að segja. En ég spurði hæstv. ráðherra hvort eitthvert mat hefði verið lagt á áhrifin. Ég treysti hæstv. ráðherra vel til margra hluta en huglægt mat ráðherrans sjálfs þykir mér ekki fullnægjandi rökstuðningur, vegna þess að tillaga um breytingar á veiðigjaldi sem nú er talað um er ekki í samræmi við niðurstöðu Auðlindarinnar okkar. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig kom þetta til? Hvar er þessi ákvörðun tekin? Er þetta pólitísk nálgun Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs úr því að ekki má lesa þetta út úr niðurstöðum Auðlindarinnar okkar?