155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:34]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Það er rétt sem hæstv. ráðherra sagði fyrr í umræðunni að það verða sjálfsagt alltaf deilur um veiðigjald meðan stjórnmálamenn ákveða reikniregluna undir það. Jóhannes Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóri, var formaður auðlindanefndar um aldamótin. Hann segir í ævisögu sinni að ekki hafi náðst samkomulag í nefndinni um að fara fyrningarleiðina annars vegar eða innheimta veiðigjald sem hluta af auðlindarentu hins vegar. Jóhannes segir að hjá deilum um veiðigjöld og mat á auðlindarentu væri hægt að komast með fyrningarleiðinni, eins og hún var kölluð í skýrslu auðlindanefndarinnar sem starfaði um aldamótin. Ég er sammála Jóhannesi um þetta. En það er nefnilega ekki þannig að það séu bara deilur um veiðigjöldin heldur er líka ósætti vegna þess að kvótakerfið og úthlutun kvóta er lokað kerfi, nýliðun er nánast ómöguleg og kvótinn erfist og helst innan fjölskyldna eða safnast á fárra hendur.

Í stóru nefndinni um auðlindina okkar, þar sem bæði ég og hæstv. ráðherra sátum, var talað um byggðakvótann. Það er boðað frumvarp núna í september eða október um breytingu á byggðakvótanum. Fyrrverandi matvælaráðherra boðaði að það yrðu breytingar á honum, að tilraun yrði gerð með útboð og að sveitarfélögin fengju að leigja frá sér byggðakvótann og gætu síðan notað peningana til að byggja upp atvinnustarfsemi. (Forseti hringir.) Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé leiðin sem hún boðar í sínu frumvarpi.