155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:36]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Varðandi byggðakvótann, svo ég byrji á því, var strax í kjölfar þess að frumvarpið sjálft kom úr samráðsgátt með þeim athugasemdum sem þar voru skipaður svokallaður innviðahópur sem átti að útfæra tillögur um hvaða leiðir yrðu farnar. Nokkrar leiðir voru teknar til í stóra frumvarpinu og ég á von á því á næstu dögum að hópurinn skili mér tillögum sínum. Við erum því ekki komin að niðurstöðu um hvaða leið við hyggjumst fara. Ég hef hins vegar nálgast þetta að einhverju leyti þannig að ég myndi vilja stækka sértæka byggðakvótann, jafnvel rýmka reglurnar eitthvað aðeins í kringum það og verið er að skoða það m.a. Ég veit ekki alveg með þetta að sveitarfélögin leigi frá sér og menn séu eitthvað að braska með byggðakvótann. Kannski verður það niðurstaðan, ég veit það ekki. Ég er aðeins hugsi yfir þessu, að sjávarauðlindin verði notuð til að byggja upp annars konar innviði í einhverjum sveitarfélögum í staðinn fyrir að nýtast sem slík, ekki síst þar sem byggð er veik, þar sem talað hefur verið um brothættar byggðir. Þess vegna vil ég a.m.k. leggja áherslu á það að stækka sértæka kvótann. Það kemur m.a. fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar að þar sem almenni byggðakvótinn og hinn sértæki hafa farið saman hefur í flestum tilfellum orðið fólksfjölgun nema líklega á tveimur stöðum. Eins og ég segi þá er ég ekki komin að niðurstöðu en ég bíð eftir þessum tillögum frá hópnum sem mér er sagt að ég eigi von á á næstu dögum.