fjárlög 2025.
Herra forseti. Ég vona að hæstv. matvælaráðherra bæði hlusti á fyrirrennara sinn í starfi og sveitarstjórnarfólk í sjávarbyggðum sem hefur einmitt kallað eftir því að farin sé önnur leið. Ég veit að hæstv. ráðherra þekkir skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þetta hefur ekki verið í góðu lagi hingað til. Það stakk mig aðeins þegar hæstv. ráðherra talaði um brask. Það er auðvitað alls ekki orðið yfir það að bjóða út byggðakvótann og nýta síðan peningana til að byggja upp atvinnu í sveitarfélögunum svo að þau geti búið sig undir hvort sem er aflabrest eða að kvótinn sé seldur úr byggðarlögum, eins og við þekkjum.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra út í þingmálaskrána. Ég tók eftir því að þrjú frumvörp varða breytingar á fiskveiðistjórn. (Forseti hringir.) Ég spyr: Af hverju er þeim skipt niður í búta? Hefur hæstv. ráðherra áhyggjur af því að þau fari ekki annars í gegn, ef þau hefðu verið í einu lagi?