155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:40]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég komst kannski ekki vel að orði þegar ég sagði brask en ég hef bara svona einhverja tilfinningu fyrir þessu. Af hverju eigum við að vera að nota kvóta til að byggja upp innviði? Hvert er hann þá leigður og hvert fer hann? Fer hann til stórútgerðarinnar eða hvert fer hann annað? (OH: …) — Já, hann fer nefnilega þangað núna, þessi almenni, og þess vegna ætla ég að leggja hann af. Það er það sem ég var að segja.

Varðandi hin málin, þ.e. af hverju ég legg þetta fram í mörgum frumvörpum, þá held ég að þau séu um margt ólík. Ekki þarf endilega að hræra öllu saman og við erum komin mislangt með sumt, ég vil líka reyna að koma þessu inn í þingið sem fyrst. Og VS-aflinn er sértækur. Við vorum með Verðlagsstofu skiptaverðs á síðasta vetri og samtal á sér nú stað við Skattinn til að reyna að útkljá það. Vigtun afla dagróðrabáta — þar erum við að velta fyrir okkur ísprósentu og fleiru. (Forseti hringir.) Ég held að það sé bara gott að hafa þetta sitt í hvoru lagi. Þá er bara tekin afstaða til þess þáttar sem þar er undir og ætti það ekki að flækja málið þannig að (Forseti hringir.) eitthvað eitt geti stoppað þetta ef fólki hugnast ekki allt sem er á borð borið.