155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:41]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég tel mig tilknúinn til að koma aftur í ræðustól og spyrja hæstv. matvælaráðherra nánast sömu spurningar og ég spurði áðan. Hún er á þessa leið: Telur hæstv. matvælaráðherra það ógna fiskstofnum við landið verði strandveiðunum tryggðir 48 dagar í veiði, 40 dagar í veiði eða þær gefnar frjálsar? Mun það ógna fiskstofnum við landið? Hver er skoðun hæstv. ráðherra á því hvort veiðar á krók, veiðar á öngul — bátur með fjögur handfæri með fjóra króka, samtals 16 króka, ef hann fær frelsi til að veiða í 40 daga, 48 daga eða jafnvel alveg frjálst, telur hæstv. ráðherra það ógna fiskstofnum við landið eða ekki? Þetta er einföld spurning og ég vænti einfalds svars.