155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[19:44]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir greinargott og skýrt svar, sem er að það ógnar ekki fiskstofnum við landið. En við erum föst í fiskveiðistjórnarkerfinu. Sem sagt, við erum með kerfi núna fyrir strandveiðarnar sem er, af því að við erum föst inni í fiskveiðistjórnarkerfinu — sem ætti raunverulega að gefa frjálst. Það ógnar ekki fiskstofnum. Öll rökin fyrir fiskveiðistjórnarkerfinu og takmörkun á atvinnufrelsi til fiskveiða byggja á verndun fiskstofna. Það er grundvallaratriði. Verndun fiskstofna eru almannahagsmunir. Það er atvinnufrelsi í landinu samkvæmt stjórnarskránni en viti menn, þegar kemur að strandveiðum þá ógna þær ekki fiskstofnum, það eru engir almannahagsmunir sem takmarka þær og þá brýtur þetta stjórnarskrána. Við getum þá haldið því fram að takmörkun á strandveiðum brjóti stjórnarskrá lýðveldisins Íslands algjörlega hreint og klárt miðað við orð hæstv. matvælaráðherra. Þannig er það. En málið er það að hún gefur sér að það sé ekki þingmeirihluti fyrir breytingum og ég skora á hæstv. ráðherra að leggja fram frumvarp um frelsi til strandveiða, af því að ég veit að í hjarta sínu er hún algerlega sammála mér. Ekki vera föst í kerfinu. Þannig að ég skora á hana. (Forseti hringir.)

En mig langar að spyrja að lokum (Forseti hringir.) varðandi ísprósentumálið, frumvarp til laga vegna dagróðrabáta: (Forseti hringir.) Mun hún beita sér fyrir því að afnema endurvigtunarleyfi á sjávarafla?