fjárlög 2025.
Frú forseti. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra út í þrennt. Í fyrsta lagi vil ég ítreka spurningu mína sem ráðherra vannst ekki tími til að svara þegar hún kom upp áðan sem hljóðaði svona, með leyfi forseta: Hefur ráðherra einhverjar tillögur til að auka verðmætasköpun í sjávarútvegi og stækka þannig kökuna og tryggja með því auknar tekjur fyrir ríkið?
Í öðru lagi vil ég spyrja hæstv. ráðherra út í það að nú lítur út fyrir að ráðherrann hafi ekki uppi áform um að leggja fram frumvarp um lagareldi á þessu þingi miðað við þingmálaskrá sem lögð hefur verið fram. Ég veitti því athygli að forsætisráðherra sagði í lok júní að það yrðu vonbrigði ef málið yrði ekki lagt fram nú í haust. Það virðist nú orðið niðurstaða. Mig langar að biðja hæstv. ráðherra kannski að útskýra í stuttu máli hvað veldur því að málið er ekki lagt fram núna aftur. Og þá kannski í ljósi þess að það er eitt af mikilvægum hlutverkum ráðuneytisins að forma ramma um eldið, telur ráðherra núverandi löggjöf bara fullnægjandi og góða og að við hana verði unað til lengri tíma?
Og í þriðja lagi, af því að ráðherra bendir réttilega á að þeir fiski sem róa — verðmætasköpunin felst auðvitað í því að nýta þær auðlindir sem við landið eru — þá langar mig að spyrja út í einn anga auðlindanýtingar sem heyrir undir ráðuneytið og það eru hvalveiðarnar. Þar hefur það fyrirtæki sem mest hefur lagt stund á þær um alllangt skeið haft tiltölulega lítil tækifæri til að bera björg í bú núna undanfarnar tvær vertíðar. Með hvaða hætti sér hæstv. ráðherra fyrir sér að þeim málum vindi fram?