155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

[09:32]
Horfa

Forseti (Jódís Skúladóttir):

Í dag verður haldið áfram umræðu þar sem ráðherrar taka þátt í umræðunni um sína málaflokka. Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Ráðherrar hafa fimm mínútur til framsögu. Tveir þingmenn frá hverjum stjórnarandstöðuflokki hafa kost á að beina fyrirspurnum til ráðherra og einn frá hverjum stjórnarflokki, að undanskildum flokki ráðherra hverju sinni. Hver þingmaður hefur tvær mínútur í fyrra sinn og eina mínútu í síðara sinn. Við lok umræðunnar talar fjármála- og efnahagsráðherra á ný og hefur til þess tíu mínútur. Þá tala talsmenn allra þingflokka í allt að tíu mínútur hver og að endingu verða lokaorð ráðherra. Andsvör eru ekki leyfð.