fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir snögga yfirferð sína á málaflokknum og þær áherslur sem fyrirliggjandi fjárlagafrumvarp felur í sér hvað þann málaflokk varðar. Ég ætla að reyna að fara yfir þennan þingvetur og vera eins sanngjörn og ég mögulega get í mínu annars kalda hjarta. Ég ætla að vera alveg heiðarleg. Við höfum auðvitað séð miklar umræður um menntamál og um málefni barna, og réttilega. Og ég fagna þeim áherslum sem hafa átt sér stað í þeim málaflokki og áhuga sem ég finn greinilega fyrir hjá almenningi. Ég ætla að leggja mitt af mörkum til að hefja þau málefni að mestu leyti yfir hið pólitíska dægurþras. Við viljum öll það sama í lok dags en okkur greinir á um leiðirnar, eins og svo gjarnan er, að settu markmiði. Ég held að lykillinn sé, og hæstv. ráðherra kom inn á það sjálfur, að málaflokknum er ekki lyft nægilega vel upp í fyrirliggjandi fjárlögum. Þó að prósentutalan fari hækkandi þá skortir okkur samt sem áður fé til að gera þær meginbreytingar sem eru okkur til trafala í þessu kerfi.
Ég ætla að spyrja hæstv. ráðherra hvernig sumarið hafi verið nýtt til góðra hluta í ráðuneytinu. Hefði hæstv. ráðherra áhuga á því að eiga reglulegra og þéttara samstarf við hv. allsherjar- og menntamálanefnd í tengslum við menntamálin og þann málaflokk sem er á hans könnu? Ég verð að segja eins og er að ég sakna reglulegri heimsókna af hálfu ráðuneytisins til hv. allsherjar- og menntamálanefndar. Ég kalla jafnframt eftir því að heyra hvort ráðherra hafi áhuga á því að virkja nánar þverpólitískt samstarf um menntamál, og sérstaklega þær áskoranir sem íslenskir kennarar og íslensk börn standa frammi fyrir hvað varðar menntun.