155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[09:43]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég ætla að sjálfsögðu að láta sjá mig á menntaþingi þann 30. september næstkomandi og hlakka til. En við í stjórnarandstöðunni og í pólitíkinni um land allt þurfum meira en sæti við borð í ráðstefnusal hótels. Við þurfum þéttara samtal. Við þurfum að geta talað saman á íslensku um þessi mál, enda ekki lítil þörf á. Við í stjórnarandstöðunni erum í myrkrinu um stöðu menntamála. Við fáum ekkert að vita. Foreldrar eru líka í myrkrinu og það sem verra er er að kennarar og helstu sérfræðingar þessa lands og helstu fagaðilar á sviði læsis, á sviði inngildandi menntunar, eru líka gjörsamlega svaralaus um það hvernig stefnan er. Hér er talað um að það sé mikilvægt að taka ekki u-beygjur. Ég er sammála því. En ég veit ekki einu sinni í hvaða átt við erum að stefna, hvort það er áfram eða aftur á bak. Fyrirætlanir hæstv. ráðherra, á sviði þeirra áherslna sem eiga að vera í menntastefnu, virðast ekki að öllu leyti byggja á mati helstu sérfræðinga landsins. Ég vísa hér í skýrslu um læsi sem var gefin út í vor, hlaut enga athygli, aðrar skýrslur hlutu talsvert meiri athygli og ég kem inn á það síðar.