155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[09:46]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Í umfjöllun um málefnasvið hæstv. ráðherra kemur fram að efla skuli almenningsíþróttastarf íþróttahreyfingarinnar, svo sem íþróttir eldri borgara. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig stendur til að vinna að því markmiði? Kemur til greina að styrkja eldriborgarastarf íþróttafélaga eins og t.d. Fylkis, sem gefið hefur góða raun, og þá hvernig? Ekki fékkst t.d. styrkur til Fylkis frá fjárlaganefnd á sínum tíma. Hvernig á að vinna að þessu markmiði og þá með hvaða fjárhæðum?