155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:00]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir hans yfirferð yfir sitt málefnasvið. Af nógu er að taka og margt spennandi að gerast, vil ég segja. Mér finnst sú áhersla sem hæstv. ráðherra lagði á að efla skólakerfið og að efla börn til mikillar fyrirmyndar. Það kom fram í máli ráðherrans, og eins í svörum við spurningum hér áðan, að það er verið að auka framlög til námsgagnagerðar. Ég er sammála því, ég held að þetta sé gríðarlega mikilvægt. Og eins og ráðherrann sagði að þó svo verið sé að tvöfalda framlagið þá er það ekki nóg. Það held ég að sé staðreynd. Auðvitað þarf að fagna því sem vel er gert en hér þurfum við svo sannarlega að halda áfram. Ég veit að hæstv. ráðherra er með áform og frumvarp á þingmálaskrá sem lýtur að gjaldfrjálsum námsgögnum og mig langar að nota tímann til að biðja ráðherrann að fara aðeins yfir það hvernig hann sér þetta fyrir sér, hvernig þessi skref verði tekin áfram; jafnvel koma inn á það, sem ég ætla reyndar að gera í minni seinni spurningu, sem lýtur að námsgögnum sérstaklega fyrir börn og raunar fólk sem hefur ekki íslensku að móðurmáli. Það er svo sannarlega hópur sem þarf að vera undir þegar kemur að því að þróa skólastarfið áfram og hafa góð námsgögn til að byggja á.