fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og ítreka aftur að efling námsgagnagerðar og uppstokkun í þeim málaflokki er gríðarlega mikilvægt mál og hluti af stefnumótun stjórnvalda í gegnum menntastefnu og aðgerðaáætlun. Samhliða þessari lagabreytingu, sem ég ætla að koma aðeins inn á, erum við að gera ráð fyrir því að efla þróunarsjóð námsgagna og námsgagnasjóð, að þeir verði tvöfaldaðir. Þá kann einhver að spyrja, þegar við förum að tala um gjaldfrjáls námsgögn: Er ekki skynsamlegra, miðað við hve mikil skuld er í framleiðslu námsgagna, að bíða með að gera þau gjaldfrjáls? Ég segi nei við því vegna þess að þegar við skoðum tölfræði menntakerfisins okkar og PISA-niðurstöður þá sjáum við að félagslegur bakgrunnur nemenda er farinn að hafa meiri áhrif en hann hefur gert í gegnum tíðina á námsárangur og möguleika til námsárangurs. Einmitt þess vegna þurfum við að stíga skrefið inn í gjaldfrjáls námsgögn í framhaldsskólunum fyrir yngri en 18 ára samhliða eflingu námsgagnaútgáfu.
Frumvarpið sem hér liggur fyrir, sem er að koma inn til þingsins, gerir ráð fyrir því að þetta gerist í skrefum á innleiðingartíma menntastefnunnar. Við erum að gera ráð fyrir nokkur hundruð milljónum króna á næsta ári til að geta stigið skrefið inn í þetta gjaldfrelsi. Markmiðið með frumvarpinu er að byrja á íslensku og stærðfræðigreinum, byrja á yngstu hópunum. Og það þarf nú á haustinu að fara fram samtal við framhaldsskólana um hvernig við sjáum innleiðinguna á þessu gerast. Við gerum ráð fyrir að fyrsta skrefið verði stigið á næstu vorönn og svo næsta skref haustið eftir. Markmiðið sé að á innleiðingartímanum, sem er tími menntastefnu til 2029, verði öll námsgögn gjaldfrjáls fyrir framhaldsskólanema yngri en 18 ára. Og við erum að gera ráð fyrir þessu, bæði í fjárlögum og í fjármálaáætlun.