fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég vil bara lýsa því yfir að ég er sammála þeirri sýn að gjaldfrjáls námsgögn upp að 18 ára aldri séu gríðarlega mikilvægt mál. Þetta er mikið jafnréttismál og verður til þess að auka samheldni í samfélaginu. Ég mun styðja ráðherrann til góðra verka. Mig langar aðeins til að koma inn á stöðu leikskólabarna með annað móðurmál en íslensku vegna úttektar OECD um stöðu innflytjenda á Íslandi. Þar kemur fram að börn sem ekki eru á leikskóla læra íslensku hægar en á sama tíma sjáum við tilhneigingu til þess að það séu einmitt yngstu börn innflytjenda sem ekki eru á leikskólum vegna þess að foreldrarnir þiggja heimgreiðslur. (Forseti hringir.) Hefur ráðherrann kynnt sér þessa skýrslu og hvernig mun hann sem mennta- og barnamálaráðherra bregðast við þessu atriði?