155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:06]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Gagnvart þessu ákveðna afmarkaða atriði þurfum við að eiga samtal við fleiri ráðuneyti, m.a. félagsmálaráðuneytið sem vann umrædda skýrslu. Ég vil segja það strax að ég er ekki með nákvæmt svar eða úrlausn við því hvernig bregðast á við þeim hópi barna með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn sem ekki sækir leikskóla. Það þarf samtal við fleiri aðila en mennta- og barnamálaráðuneytið. Þegar kemur að leikskólastiginu erum við að gera ráð fyrir því, og höfum átt samtal við alla hagaðila um það, að fyrstu þúsund dagar barnsins verði áhersluatriði í næstu aðgerðaáætlun menntastefnu. Við höfum verið að horfa á breytingar núna sem varða grunnskólastigið að verulegu leyti og kerfisbreytingar í stuðningi, með Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og nýrri lögum um skólaþjónustu. Og við munum þurfa að stíga fastar inn gagnvart leikskólastiginu og sérstaklega gagnvart börnum (Forseti hringir.) með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn. Ég ítreka enn og aftur að þó að hér sé 55% aukning í fjárlagafrumvarpi til leik- og grunnskólastigsins heldur það engan veginn í við fjölda barna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi.