155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:07]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég vil nýta þennan stutta tíma minn hér til að koma með nokkrar spurningar til hæstv. ráðherra. Nú er ég ekki fyrst til að nefna eitt helsta áhyggjuefni þjóðarinnar um þessar mundir sem er aukið ofbeldi í samfélaginu, að börnin okkar eru farin að bera vopn sér til varnar. Augljós orsök aukins ofbeldis í samfélaginu er aukin vanlíðan og óöryggi. Samstarfsflokkur hæstv. ráðherra í ríkisstjórn telur vænlegast að bregðast við auknu ofbeldi með meira ofbeldi, auknum vopnaburði lögreglu, eftirliti með almennum borgurum og aukinni hörku. Mig langar að byrja á að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann deili þessari sýn eða hvort hann telji aðrar leiðir færar og þá kannski ekki síst þegar við erum að tala um börnin okkar.

Ég er með nokkrar spurningar um nokkra þætti sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í og vonast til þess að vera ekki að ætlast til of mikils á þessum stutta tíma. Mig langar í fyrsta lagi að spyrja hvort það standi til, á vegum ráðuneytisins eða á vegum annarra aðila, að fara í sérstaka úttekt á þeim áhrifum sem heimsfaraldur Covid hefur haft á börnin okkar, ekki síst óhörðnuð ungmenni sem voru einangruð á þeim árum ævinnar þegar við þróum helst með okkur félagsþroska og getuna til að rata um í samfélagi í samskiptum við annað fólk, allt heildarsamhengið í því, áhrif aukins heimilisofbeldis á börn og annað. Þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða aðgerðum er verið að bæta við til að tryggja börnum sálfræðiþjónustu inni í skólunum sem og annars staðar? Ég ætla að byrja á þessu.