155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:09]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Það verður erfitt að svara þessum þremur spurningum á tveimur mínútum. Aukið ofbeldi, hvernig er best að taka á því? Ég held að það sé mjög mikilvægt, miðað við aðstæðurnar eins og þær eru núna, að efla lögregluna og þá sérstaklega samfélagslögreglu. Að því sögðu verðum við líka að efla brúna þaðan yfir í barnaverndina, yfir í félagsþjónustuna, yfir í úrræðin til þess að geta gripið þessi börn. Að því sögðu: Ef við ætlum virkilega að ná að snúa þessu við — þetta er að gerast alls staðar í hinum vestræna heimi, aukning ofbeldis, aukning hnífaburðar — verður að fara í rótina sem er hið félagslega. Það er því gríðarlega mikilvægt, þegar við erum að ræða þessi mál, að við séum á sama tíma að efla félagsmiðstöðvar, efla félagslega þjónustu, efla úrræði á fyrsta og öðru stigi í farsældarvinnunni. Við getum farið að tala um það núna vegna þess að við erum komin með kerfi þar sem verið er að tala saman innan sveitarfélaganna. Ég hef lagt mikla áherslu á það, í þeim aðgerðum sem verið er að vinna að, bæði í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið og við dómsmálaráðuneytið, að alltaf sé gætt að hinu félagslega samhliða. Það bera þessar aðgerðir með sér. Aukningin sem verið er að vinna að mun koma hér inn til 2. umræðu og líka í fjárauka en gert er ráð fyrir því m.a. að setja hundruð milljóna í eflingu fyrsta og annars stigs úrræða í samstarfi við sveitarfélögin. Þegar kemur að Covid gerðum við slíkt hið sama. Við vorum alltaf með félagslegar aðgerðir. Það vakti athygli út fyrir landsteinana að Ísland var eitt af fáum löndum þar sem barnaverndarmálum fjölgaði í Covid-faraldrinum. Við vissum að aðstæður eins og voru í Covid myndu auka á drykkju, ofbeldi og erfiðleika. En við náðum, með því að efla félagslegu kerfin okkar, að grípa fleiri. Eigum við að halda áfram að vakta áhrif Covid-faraldursins? Já, við eigum að gera það og vinna úr því og við erum sannarlega að einhverju leyti að vinna úr áhrifum þess. Það eru allir sammála um það víðar í hinum vestræna heimi. Ég biðst afsökunar á að hafa farið fram yfir tímann, frú forseti.