155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:13]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Þetta eru mjög góðar spurningar hjá hv. þingmanni og ég ætla að reyna að fara mjög hratt yfir til þess að geta svarað. Ég er algerlega sammála hv. þingmanni að við eigum að stíga fyrr inn. Við höfum tækifæri til þess. Við erum m.a. með í gangi foreldrafærninámskeið sem verið er að prófa í öllum skólum á Akranesi. Fleiri sveitarfélög eru að horfa til þess og markmiðið er svo að geta innleitt það á landsvísu. Þá ertu að stíga fyrr inn. Þegar kemur að íþróttum og tómstundum þá höfum við séð, og sáum það í Covid-faraldrinum, þegar við eyrnamerktum sérstakt fjármagn til íþrótta- og tómstundastyrkja til tekjulægri heimila, að það jók ekki þátttöku þessara barna. Það eru félagslegar aðstæður sem skipta máli. Það þarf að nálgast þessi börn öðruvísi. Það þarf að nálgast fjölskyldurnar. Það þarf að byggja upp traust við aðila. Það er m.a. það sem er markmiðið með samstarfi Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og UMFÍ með nýju svæðaskipulagi og hvatasjóði þar inn, þ.e. að byggja upp og byggja á gögnum og tölfræði, fara inn á svæðin og vinna þetta dálítið handvirkt, hvað virkar og hvað virkar ekki. Þetta snýst ekki eingöngu um fjármagn. Þegar kemur að móðurmálskennslu barna af erlendum uppruna höfum við ekki fjárhagslegt svigrúm til að stíga fast inn þar vegna þess að við erum í slíkri innviðaskuld gagnvart börnum með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn að við þurfum að byrja á íslenskukennslu. En móðurmálskennsla er sannarlega mikilvæg.