fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér til þessarar umræðu. Tíminn er knappur eins og við þekkjum. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað kostar að gera námsgögn gjaldfrjáls að fullu fyrir 18 ára og yngri þegar innleiðingu þess verkefnis verður lokið árið 2029? Mig langar sömuleiðis til að spyrja hæstv. ráðherra, í ljósi þess að hluti þess kostnaðar sem við okkur blasir er auðvitað í þessum stóru og þungu kerfum, um afstöðu til skóla án aðgreiningar. Hefur tekist vel til og hvaða áhrif hefur fjölgun barna sem hafa ekki íslensku sem fyrsta tungumál á það fyrirkomulag mála? Ætli ég láti þetta ekki duga í ljósi umfangs seinni spurningarinnar. Fyrri spurningunni er væntanlega fljótsvarað.