155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:25]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Gert er ráð fyrir því, eins og ég hef sagt áður, að stefnan um gjaldfrjáls námsgögn fyrir yngri en 18 ára verði innleidd í þrepum. Markmiðið er að það taki að fullu gildi árið 2029. Gert er ráð fyrir því að heildarkostnaður sé á bilinu 350–400 milljónir á ári. En mig langar að ítreka það sem ég sagði áðan, og mun líka koma fram í umræðum um þessi mál þegar frumvarpið kemur fram, að ef við skoðum tölfræðina yfir þá þætti sem hafa áhrif á það hvort nemendur halda áfram námi og ná árangri í námi þá er hinn félagslegi þáttur í vaxandi mæli að hafa áhrif. Ég held því að þessu fé sé gríðarlega vel varið, enda er kjarni menntastefnunnar jöfn tækifæri fyrir alla.

Þegar kemur að inngildandi menntun langar mig að segja þetta: Það væri mikið skref aftur á bak í íslensku skólakerfi ef við ákvæðum að stíga til baka úr skóla fyrir alla, skóla án aðgreiningar. Við höfum hins vegar ekki komið með nægileg verkfæri, tæki og tól, inn í skólana, aðstoðað ólíka aðila við að vinna saman inni í skólunum, til að skóli án aðgreiningar virki sem skyldi. Það er eitt af markmiðum menntastefnunnar að gera það og það er þess vegna sem gert er ráð fyrir því að stórt frumvarp komi inn í þingið, vonandi í október, ekki seinna en í nóvember — það er reyndar þegar búið að kynna það í samráðsgátt — hvað varðar skólaþjónustu og inngildandi menntun. Það frumvarp fær ekki jafnmikla athygli og frumvarp um námsgögn eða matskerfi í skólakerfinu en það er að mínu viti stærsta og mikilvægasta frumvarpið til að tryggja að skólinn sé fyrir alla og skólarnir og kennararnir (Forseti hringir.) fái þá þjónustu sem þeir þurfa á daglegum grunni. Að þessari frumvarpsgerð hefur ansi stór hópur fólks komið og ég hlakka til að ræða það. (Forseti hringir.) En að hætta með skóla án aðgreiningar, ég mun aldrei fallast á það.