155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:28]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Svo að því sé til haga haldið þá var ég ekki að leggja slíkt til heldur að spyrja um afstöðu hæstv. ráðherra. Hann svarar því til að kostnaður við að gera námsgögn gjaldfrjáls að fullu sé 350–400 milljónir þegar verkefnið verði að fullu innleitt. Hann segir líka að fyrsta skrefið verði stigið næsta vor og næsta skref haustið eftir og að markmiðið sé innleiðing á tíma menntastefnu til 2029, að þá verði öll námsgögn gjaldfrjáls fyrir framhaldsskólanema yngri en 18 ára. Hann nefnir það líka að gert sé ráð fyrir þessu bæði í fjárlögum og fjármálaáætlun. Í ljósi þeirra orða velti ég því fyrir mér að það er ekki stafkrókur um þetta í fjármálaáætlun, ekki einn, sem er fyrir tímabilið 2025–2029, sem er innleiðingartímabil verkefnisins. Kann hæstv. ráðherra einhverjar skýringar á því af því að hann tilgreindi það sérstaklega hér áðan að gert væri ráð fyrir þessu í fjármálaáætlun?