155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:34]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Forseti. Ég spurði ekki hvort þær væru teknar inn í vinnuna heldur hvernig. Ég veit að þetta er stórt að fara yfir og tíminn er knappur en ég hlakka til að eiga ítarlegra samtal við hæstv. ráðherra um þessi mál þegar fram líða stundir. Ég spyr vegna þess að viðhöfnin við kynningu á drengjaskýrslunni svokölluðu var slík að ég saknaði þess að aðrar ekki síðri skýrslur og úttektir nytu sömu viðhafnar og þeirri athugun var sýnd. Það er góðra gjalda vert að kynna með viðhöfn metnaðarfull áform um inngildandi menntun og ég veit að það verður rauði þráðurinn í því sem hæstv. ráðherra ætlar að koma á framfæri hér í vetur. Ég vil samt nota tækifærið og segja að frumvarpið, eins og það hefur verið kynnt á samráðsgátt, er í raun kynning á skólaþjónustu en ekki um það hvernig inngildandi menntun eigi að fara fram. Það hafa komið fram mjög málefnalegar athugasemdir við þetta frumvarp, sérstaklega um stöðu einstaklinga og barna af erlendum uppruna. Ég ætla að hvetja (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra til að vera ítarlegri um það hvernig inngildandi menntun á að vera, ekki bara hvort hún verði veitt.