fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir. Það er þannig að skýrslurnar eru teknar inn í vinnu við mótun frumvarpa og annarra þátta. Það liggur fyrir að ein af ástæðunum fyrir því að ákveðið var að búa til heildstæða skólaþjónustu, að það væri hluti af meginaðgerðum núverandi menntastefnu, voru skýrslur sem höfðu verið unnar þar á undan um að það vantaði aukin verkfæri inn í skólakerfið, að það vantaði aukna stoð og aukna þjónustu. Síðan er það þannig að þegar verið er að vinna stórt frumvarp, eins og frumvarp um skólaþjónustu og inngildingu er, sem á annað þúsund manns hafa komið að á vinnufundum og annað, sem eru síðan kynnt í samráðsgátt, þá koma að sjálfsögðu athugasemdir. Það er markmiðið. Frá því að athugasemdirnar hafa komið hefur ráðuneytið verið að vinna úr þeim með hagaðilum menntakerfisins. Þess vegna m.a. lögðum við frumvarpið ekki fram á vorþinginu og fluttum það á haustþingi vegna þess að við vildum vinna frumvarpið áfram. Ég hlakka til að ræða þetta frumvarp við hv. þingmann þegar það kemur inn í þingið og tek undir með þingmanninum hvað það varðar að fagna líflegum umræðum um menntamál. (Forseti hringir.) Ég hlakka til samvinnu við hv. þingmann sem og aðra um þetta mál í vetur.