155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:37]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Verkefnið Kveikjum neistann í Vestmannaeyjum, varðandi læsi og önnur atriði í skólastarfi barna í yngstu bekkjum grunnskóla, hefur sýnt ótrúlegan árangur. Í öðrum bekk í Eyjum eru 83% barna læs á móti 52% læsi í 20 skólum í kringum landið. Er þetta samkvæmt prófum sem þeir hafa þróað og byggja ekki á hraðlestrarkröfunni, um að lesa hratt í tvær mínútur eins og stendur í handbók Menntamálastofnunar. Kveikjum neistann í þriðja bekk í Eyjum hefur skilað 91% læsi á móti 60% læsi í 15 skólum í kringum landið. Langir skóladagar án markmiða — 50% ólæsi skapar stóra áskorun fyrir drengi. Þau í Eyjum eru búin að sýna fram á að með breyttu skipulagi skóladagsins, hreyfingu, þjálfunartíma, ástríðutíma og áherslu á hugarfar, geta 91% lesið eftir þriðja bekk og það er enginn kynjamunur. Við sjáum einnig að líðan er betri í fyrsta bekk miðað við árgangana á undan. Börnin eignast líka fleiri vini. Við þurfum að byggja á þessari hugmyndafræði, byggja á hugmyndafræði beinnar kennslu eins og verið er að gera í verkefninu Kveikjum neistann. Finnar hafa stigið þetta skref, gerðu það fyrir mörgum árum, og árangur Finna á grunnskólastigi er ótrúlegur og fyrirmynd annarra þjóða. Við verðum því að fara að einfalda hið flókna og sjá til þess að grunngeta og tengsl milli getu og sköpunar, sem Kveikjum neistann byggir á — að verkefnið sé tekið upp víðar. Aðeins hefur tekist að fá einn skóla í viðbót, fyrir utan grunnskóla í Vestmannaeyjum, til að taka upp Kveikjum neistann, það er Lindaskóli, af 170 skólum. Þó að ekki nema 10 skólar myndu taka það upp væri það stórkostlegur árangur, en það er engin von til þess. (Forseti hringir.) Ekki nokkur. Spurning mín til hæstv. menntamálaráðherra er: Mun hann beita sér fyrir því (Forseti hringir.) að verkefnið Kveikjum neistann og menntasetrið sem sér um það fái fjármagn til að koma þessu verkefni í fleiri skóla til að boða innleiðingu ókeypis?