fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Ég ætla að byrja á almennum nótum. Ég tek undir það með henni að það er mikilvægt að við lærum af verkefnum, sprotaverkefnum í ólíkum atriðum, sem eru að reynast vel í kringum landið. Við þurfum að huga að því hvernig við getum aðstoðað aðra skóla og önnur svæði við að tileinka sér slík úrræði. Menntamálaráðuneytið hefur frá upphafi verið samstarfsaðili við þetta verkefni, Kveikjum neistann. Af því að núverandi menningar- og viðskiptaráðherra situr hér í salnum má geta þess að verkefnið hófst þegar hún var mennta- og menningarmálaráðherra og við höfum fylgt því eftir á jákvæðan hátt. Hér var verið að tala um skýrsluna um drengina og ein af tillögunum þar var einmitt að úrræði af þessu tagi, sem eru að reynast vel, yrðu tekin upp og fleiri aðilar aðstoðaðir við að innleiða slíkar aðgerðir. Við höfum oft átt þetta samtal, ég og hv. þingmaður, og það er ekki ráðuneytið sem fer um landið og segir: Heyrðu, þetta er gott. Nú ætla ég að mæta og innleiða þetta á öðrum stað. Til þess þyrftum við einingu sem hefði það hlutverk að aðstoða skólana við það. Þess vegna var svo mikilvægt að stofna Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tók til starfa 1. apríl. Þetta verkefni, Kveikjum neistann, er nú í samtali á milli Háskóla Íslands, rannsóknarsetursins í Vestmannaeyjum, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu — hvernig við getum í sameiningu stigið það skref að aðstoða fleiri sem vilja nýta sér það. Ólíkt því sem hefur verið, þegar við hv. þingmaður höfum rætt þessi mál á fyrri stigum, þá erum við einmitt að komast á þann stað núna að geta aðstoðað og fylgt fleiri sveitarfélögum og fleiri skólum eftir við að taka það verkefni upp. En það er líka mikilvægt að átta sig á því að aðstæður geta verið breytilegar, hlutirnir þurfa kannski að gerast með ólíkum hætti á milli svæða. (Forseti hringir.) Það er eitt af því sem er í samtalinu.
Þannig að: Mun ráðherrann beita sér fyrir því að aðstoða þá sem vilja taka upp (Forseti hringir.) Kveikjum neistann? Já, hann mun gera það í gegnum Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tekin er til starfa.