fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst að skólarnir okkar eru eitt mikilvægasta jafnréttistækið sem við höfum, tæki til þess að jafna tækifæri á milli einstaklinga, fjölskyldna o.s.frv. Þess vegna verðum við m.a. að sinna skólanum vel, til að efla einstaklingana okkar svolítið á þeirra forsendum og hafa skólakerfi sem heldur utan um mjög ólíka einstaklinga. Stundum tekst vel upp og stundum má gera betur, það er gömul saga og ný. Eitt það mikilvægasta sem að þessu kemur eru auðvitað námsgögn. Ég fagna því að verið er að taka stór skref í námsgagnaútgáfu. Síðast var bætt í til námsgagna fyrir 17 árum. Þá voru settar 100 milljónir í sjálfstæðan námsgagnasjóð en hann var síðan skorinn niður 2010 eða 2011, kannski líka af því að þáverandi ráðherra, sem vill svo til að er sú sem hér stendur, opnaði á það að sjálfstæðir bókaútgefendur gætu komið að þessu.
Ég vil líka undirstrika að ég fagna þeim tónum sem hér eru gefnir, að verið sé að opna á að það verði ekki eingöngu ríkisútgáfa. Ég hvet ráðherra til þess. En það sem skiptir mestu máli er að námsgögnin uppfylli gæðakröfur til að sinna því hlutverki sínu að ýta undir jafnan rétt og jöfn tækifæri til náms. Þess vegna vil ég gjarnan fá frekari útskýringar á því í hvað nákvæmlega þessi fjárhæð fer, til að mynda hvað varðar námsgögn fyrir börn af erlendu bergi brotin. Ráðherra segir réttilega að félagslegur bakgrunnur skipti mjög miklu og í öllum gögnum, öllum skýrslum sjáum við að börn af erlendu bergi brotin eru að verða eftir. Það má ekki gerast, það má bara ekki gerast. Námsgögn eru hluti af því að efla utanumhaldið um þau. En hvað þýðir síðan þessi aukning fyrir öll skólastig og hvað fer raunverulega mikil aukning til grunnskólans á milli ára, hvað bætist við? (Forseti hringir.) Ég heyri af samtölum mínum við skólafólk, við grunnskólakennara, að skilaboðin séu ekki nægilega skýr af hálfu ráðuneytisins um það hvað aukningin til námsgagna er raunverulega mikil á grunnskólastigi til að mynda.