155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:50]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Já, þetta svaraði spurningunni og mér fannst ráðherra heiðarlegur um að ekki væri búið að útfæra þetta nægilega vel. Við tökum þessa umræðu þegar námsgögnin koma. Það sem er lykilatriði er að námsgögnin nái til barnanna okkar en þau þurfa líka að vera þannig að þau styðji við kennarana, styðji við fagmennskuna. Þeir eru með mjög ólíka hópa, miklu ólíkari og fjölbreyttari hópa en bara fyrir 20 árum síðan og námsgögnin verða að leyfa kennaranum að finna að hann er með stuðning, bæði í gegnum námsgögn og síðan í utanumhaldi með stjórnun og skóla- og menntastefnu hvers sveitarfélags.

Að öðru, en ég hef lítinn tíma varðandi þetta, risamál á allt öðru sviði. Ég verð að koma að afreksíþróttum. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra, af því að nú var ákveðin kynning á afreksstefnunni sem er verið að undirbúa, m.a. undir forystu Vésteins Hafsteinssonar: Liggur fyrir hvað ráðherra og ríkisstjórnin ætla að setja í málaflokkinn (Forseti hringir.) og líka sú stefnumótun sem við þurfum á að halda til að við sjáum til að mynda (Forseti hringir.) fleira fólk á palli á Ólympíuleikunum eftir átta ár, í síðasta lagi tólf?