155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:07]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða spurningu og athugasemd sem tengist nýrri ferðamálastefnu og varðar þolmörk og álagsstýringu. Ég vil upplýsa hv. þingmann um það að ég legg mjög mikla áherslu á að við náum árangri þarna. Við byrjum auðvitað á því að skoða mjög ítarlega þessi þolmörk á ákveðnum stöðum og við erum að velja þá. Við byrjum á því að taka hæg en ákveðin skref, en ég vil nálgast þetta á samræmdan og heildrænan hátt þannig að þetta sé ekki eins og er í dag, sem er miður, að til mynda séu bílastæðagjöld mjög víða um landið. Til þess að þetta sé líka sanngjarnt gagnvart fólkinu sem hér býr og okkar gestum þá þurfum við að ná aðeins betri stjórn á þessu. Við erum að sjá vísi að því í ferðamálastefnunni. Eins og ég segi þá munum við byrja á því að taka nokkra staði, kanna þolmörk þeirra og fara svo að innleiða þessa álagsstýringu. Mín von er sú og framtíðarsýnin er að við byggjum gjaldtöku í ferðaþjónustu á álagsstýringu og nýjustu tækni, í raun og veru ekkert ósvipað og sumir staðir hafa innleitt sem eru reknir af einkaaðilum. Þá getur ferðamaðurinn séð hvenær hann vill koma. Við getum þess vegna stýrt gjaldtökunni þannig að þegar mikið álag er þá greiðir þú meira o.s.frv. Við höfum líka nefnt að gistináttaskatturinn, þar sem við skattleggjum aðeins einn hluta af ferðaþjónustunni, sé ósanngjarn gagnvart þeim. Vonin er að gera þetta mjög vel á heildstæðan hátt og setja svo gjaldtökuna þarna inn.