fjárlög 2025.
Frú forseti. Mig langar að þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr svör. Ég held að það skipti grundvallarmáli að hér sé ráðist í samræmdar aðgerðir allra hluta vegna, vegna atvinnugreinarinnar, jafnræðis á milli fyrirtækja og viðmótsins gagnvart ferðamönnum. Síðan, eins og nefnt var, að við álagsstýrum með gjaldtöku. Ég held að það sé löngu tímabært skref fyrir okkur að taka. Við höfum verið svolítið lengi að komast þangað en ég hygg að flestir geri sér grein fyrir því að þegar við tökum á móti tveimur milljónum ferðamanna, plús að Íslendingar ferðast að sjálfsögðu um landið sitt og ég geri mér grein fyrir að það þarf auðvitað að taka tillit til heimamanna, sé álagsstýrð gjaldtaka framtíðin.