fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Auðvitað er megintilgangurinn með því að setja ferðamálastefnu að setja stefnu í kringum þessa atvinnugrein og mér finnst þeir aðilar sem hafa komið að mótun hennar hafa verið mjög raunsæir í nálgun og skynsamir að því leytinu til, eins og hv. þingmaður sagði, að við þurfum að tryggja verðmætasköpun en líka að álagið á helstu náttúruperlur landsins sé þannig að við verndum þær. Náttúra Íslands er algjörlega einstök á heimsvísu og okkur ber skylda að vernda hana sem slíka til að fólk geti notið hennar. Ég tek undir með hv. þingmanni að við erum svolítið sein að koma á álagsstýringu og gjaldtöku en á móti kemur að við höfum náð miklum samhljómi í atvinnugreininni og (Forseti hringir.) það eru í raun og veru mikil tíðindi að þetta sé unnið með atvinnugreininni á þennan hátt.