155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:12]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra fyrir framsöguna. Í þingmálaskrá kemur fram að frumvarp til laga um Þjóðaróperu verði endurflutt nú í september. Mig langar að spyrja aðeins um efni þess. Það kom til allsherjar- og menntamálanefndar sem ég á sæti í á síðasta þingi. Varðandi skipulagið þá virðist vera sem Þjóðarópera eigi að vera deild í Þjóðleikhúsinu. Í 8. gr. b kemur fram að vissulega sé óperustjóri Þjóðaróperu listrænn stjórnandi og móti listræna stefnu, en óperustjóri heyrir undir þjóðleikhússtjóra í skipuriti og skal eiga samráð við hann um gerð fjárhagsáætlana og meiri háttar ákvarðana. Við erum því að tala um að óperustjóri verður undirmaður þjóðleikhússtjóra, þetta verður þá í miklu samstarfi og þetta er sett inn í kaflann um Þjóðleikhúsið.

Spurning mín er þessi: Kom ekki til greina að gera kafla og hafa hann bara um Íslensku óperuna? III. kafli í lögum um sviðslistir í dag heitir Íslenski dansflokkurinn. Kom aldrei til greina að gera sambærilegan kafla sem héti bara Íslenska óperan? Það yrði þá sjálfstætt batterí með samning við Þjóðleikhúsið, vegna þess að ég sé ekki annað en að miklir erfiðleikar gætu orðið í samstarfi óperustjóra og þjóðleikhússtjóra verði þetta að lögum. Og hvernig er þetta samstarf hugsað út frá því hversu sjálfstæður óperustjóri er? Við sjáum að listdansstjóri er mjög sjálfstæður í 11. gr. laga um sviðslistir en óperustjóri er það ekki þar sem hann er undir þjóðleikhússtjóra. Kom aldrei til greina að hafa sérkafla og hafa sama módel og hjá Íslenska dansflokknum, og hafa þá Íslensku óperuna; byggja á þeim mikla grunni og því mikla starfi sem þar er? Að lokum væri gott að vita hversu mikið fé er hugsað til þessarar deildar í Þjóðleikhúsinu, Þjóðaróperu, á næsta ári. (Forseti hringir.) Mun þetta verða vettvangur sem mun stórefla óperulist í landinu strax á næsta ári?