155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:14]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að nefna Þjóðaróperu og þessi áform sem við höfum um stofnun hennar. Ég svara því neitandi — við viljum ekki hafa sama fyrirkomulag og við höfum fyrir Íslenska dansflokkinn. Meginástæða þess er að við erum að fullnýta þá menningarinnviði sem eru nú þegar til staðar. Hvað á ég við? Hugmyndin á bak við Þjóðaróperu er að hún hefur aðsetur í Þjóðleikhúsinu en vinnur mjög náið með Hörpu. Það er afar mikilvægt að það sé ákveðið skipulag sem gangi upp innan veggja Þjóðleikhússins. Sýnin er sú að við verðum með eina sviðslistastofnun. Þar verður Þjóðleikhús, Þjóðarópera og Íslenski dansflokkurinn og við getum þá bæði nýtt markaðsstarf, fjármálastjórnun og eitt og annað. Þarna erum við að horfa til Kaupmannahafnar. Danir sinna sviðslistum með þessum hætti. Þarna hefur náðst ákveðið hagræði í umsýslu og við erum þá frekar að beina fjármununum í listsköpun og til þeirra sem starfa við listina. Við erum því í raun og veru að minnka stjórnsýslu en auka listsköpun.