fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið, sem var um margt áhugavert. Það fyrsta sem vaknar í huga mér — vissulega erum við að horfa til Kaupmannahafnar en ég var meira að horfa til Björgvinjar eða Bergen í Noregi þar sem óperan er sjálfseignarstofnun en í miklu samstarfi við við Nationaltheatret í Bergen og er með aðgang að því. Kom aldrei til greina að horfa á módelið eins og það er í Björgvin hvað þetta varðar? Miðað við það sem hæstv. ráðherra sagði, að þetta yrði ein sviðslistastofnun, þá væntanlega í Þjóðleikhúsinu, er uppi hugmynd um að endurskoða kaflann um Íslenska dansflokkinn fljótlega í samræmi við það sem ráðherra sagði í fyrri ræðu? Líka langar mig að ítreka spurningu mína um fjármagn: Verður fjármagn tryggt til rekstrar þannig að það verði kraftur í þessari stofnun strax á næsta ári? (Forseti hringir.) Mig langar svo að spyrja aftur: Kom aldrei til greina að byggja meira á grunni Íslensku óperunnar, (Forseti hringir.) því áratugastarfi sem þar er og er alveg ótrúlegt? Maður man bara sjálfur þegar hún var að byrja í Gamla bíó o.s.frv.